Nei takk!

Nei, heyrðu mig andskoti. Ég get ekki gert Þórbergi það, að birta hér orð hans við hliðina á blóðmjólkandi gangverki kapítalismans; ég get ekki gert sjálfum mér það, að birta hér texta áfram, nauðugur viljugur í kompaníi við mammon; ég get ekki látið neyða mig til að sitja undir þessu, ellegar gjöra svo vel og kaupa þetta auglýsingaflæði burt - ég notast ekki einu sinni við krítarkort!

Hér með læt ég því flaggi mínu endanlega lokið og þar með örbylgjuárás minni innan frá í þessum samkomustað mínusvaríanta og skoðanaglaðra fábjána - þ.e. 'moggablogginu' svokallaða. 

Ekki í mínu nafni!

  


EINUM KENNT - ÖÐRUM BENT

Mikil Þórbergshelgi er framundan í lífi margra andans manna, en löng og góð dagskrá er alla helgina í Háskóla vorum, í tilefni þess að 12. mars nk. verða 120 ár liðin frá fæðingu Þórbergs Þórðarsonar, sem réttast væri að útnefna elsta núlifandi Íslendinginn, enda fáir ef nokkrir látnir einstaklingar sem hafa lifað jafn vel í verkum sínum og eiga jafn brýnt erindi til nútímamannsins líkt og ÞÞ.

Þórbergur mat einna mest af öllum skrifum, þau skrif einstaklingsins, sem hann festir niður einkum fyrir sjálfan sig frá degi til dags; þ.e. nokkurs konar dagbækur, enda liggja eftir Þórberg fleiri hillumetrar af dagbókum hans í Landsbókasafninu. En Þórbergur skrifaði einnig líf sitt upp aftur og aftur, sem og hugleiðingar um menn og málefni og allt birti hann þetta opinberlega. 

Það má því sterklega leiða líkur að því, að Þórbergur myndi vera einn ötulasti og besti flaggari (ísl-enska: bloggari) okkar landsmanna, væri hann enn uppi. Af þeim sökum langar mig að tileinka Þórbergi þessa vefsíðu næstu vikuna - þrátt fyrir helvítis mammonsku auglýsingarnar hér til hliðar, sem ég hef ekki efni á að kaupa burt - með því að birta brot úr verkum hans.

Og hef ég þá leika með broti úr kaflanum Rætur lágkúrunnar í bókinni Einum kennt - öðrum bent, en í þessu tiltekna textabroti beinir Þórbergur augljóslega hvössum orðum spjótsins að Ásbirni nokkrum Kristinssyni:

 

Lágkúran er hinsvegar í innsta eðli það ásigkomulag sálarinnar, sem lítur á lífið neðanfrá, en finnur sjálft sig smátt og lítilmótlegt. Það er nánar sagt það borðið í uppskafningunni, sem veit að manninum, þegar illa gengur.

            Þegar einstaklingur, sem hefur þessar andstæður í ríkum mæli, er tekinn að olnboga sig áfram í mannfélaginu, hvortheldur er til valda, auðsöfnunar, lærdóms eða listrænna afreka, fer honum æfinlega svo, ef ekki gerist kraftaverk í lífi hans, að hann tekur að leggja meira og meira falskt mat á manngildi sitt. Hann reynir að bæla niður og fela lítilmótleikakennd sína með því að telja sér trú um, að hann sé nú töluverður þéttings-bubbi og rembist við að sýnast meiri karl en hann í sannleika er. Þessi sjálfshafning leitar meðal annars út í hroka og mikillæti og lítilsvirðingu á öðrum, mannfyrirlitningu.

 

 

 


Kvennaskólinn vann, ekki MH.

Almennt er ég hættur að flagga hér skoðanir mínar eins og lesendur vita. En þar sem fjölmiðlar, fjölmargir sem að keppninni koma á einn hátt eða annan, sem og almennir borgarar hafa gengið hart á eftir því að ég tjái mig um keppnina, verð ég hér með við því:
 

MH-ingar unnu keppnina ranglega eins og fram hefur komið, og breytir engu að liðið skildi hafa svarað skilja þegar spurt var um skilvindu. Þó að orðin séu vissulega samheiti þá er og hefur orðið skilja aldrei verið notað yfir þá skilvindu, sem notuð er við rjómagerð og aðra mjólkurvinnslu, eins og sjá má þegar öll rafræn orðasöfn Háskóla Íslands eru skoðuð.

Hins vegar hefur það ekki komið fram í þessari umræðu að MH-ingar fengu í raun mistök dómarans í fyrra endurgoldin með þessum mistökum hins nýja dómara. Í undanúrslitum árið 2007 kepptu MK og MH í undanúrslitum, en keppnin endaði í bráðabana, sem fór þannig að MK vann. Davíð Þór Jónsson gaf þó MK-ingum eitt aukastig í hraðaspurningum þegar hann sagði að einn liðsmaður MK hefði klárlega svarað 7 þegar spurt var hversu margir væru í septett. Fyrir það fyrsta svöruðu þeir einungis 5 og 6 eins og sjá mátti þegar upptökur voru skoðaðar, en jafnvel þó að þeir hefðu sagt 7 hefði það þurft að yfirgnæfa ranga svarið til að fiska réttmætt stig. MH-ingar kusu að aðhafast ekkert í málinu.

Páll Ásgeir hefur þó gert fleiri mistök í vetur heldur en þessi einu og umræddu, og reyndar var staðan svo slæm í fyrstu umferðunum að liðurinn „dómarinn étur ofan í sig” var orðinn stærri heldur en yfirferð rangra svara, enda gátu liðin svarað flestum þeim spurningum sem voru á annað borð gallalausar hjá dómara. Ein mistök vógu þó þyngra en önnur, en lið Menntaskóla Borgarfjarðar komst áfram í aðra umferð þegar liðið var dregið áfram sem eitt af þremur stigahæstu tapliðum, hin liðin voru FÁ og Flensborg. Enn og aftur hafði þó Páll Ásgeir gert mistök í sínum möppum og gaf því MB ranglega aukastig; hann hefur eflaust notað landakort frá því snemma á síðustu öld, því á hans kortum átti Noregur ekki landamæri að Rússlandi. Þar með duttu FÁ og Flensborg úr keppni, en MB komst áfram fyrir mistök dómara.

Kaldhæðnislega er ljóst að Páll hafði rétt fyrir sér í viðtali við Morgunblaðið fyrr í vetur þegar hann lét eftirfarandi orð falla: „Ég hef ekki hugmynd um það af hverju ég var beðinn um að vera spurningahöfundur, þar sem ég hef ekki komið nálægt slíkum keppnum áður. Auðvitað getur verið að þeim finnist ég vera snillingur, en það væri gáleysislegt af mér að halda því fram sjálfur.”

Margir tjá sig um dómarann og reyndar einnig spyrilinn á síðunni gettubetur.is og koma þar m.a. eftirfarandi skoðanir fram:

„Ég verð að segja að ég er ekki sáttur með dómara keppninnar í ár. Ef fram heldur sem horfir verður hans minnst sem einum af mistækustu dómurum keppninnar frá upphafi, því hver rangfærslan hefur rekið aðra í útvarpskeppnum hans. Mér sýnist vera lágmark ein villa á hverja keppni sem háð hefur verið hingað til, og er það að sjálfsögðu óásættanlegt. Leggur Páll Ásgeir virkilega engan metnað í spurningarnar sínar?”„Þetta er algjörlega út í hött. Ég hélt að botninum væri náð og leiðin lægi uppávið frá klúðrinu þegar MR fengu sömu spurningum [sic] í tveimur keppnum í röð en það hefur greinilega engin vinna verið lögð í að reyna að hefja þetta upp á mannsæmandi og viðundandi plan.”

„Páll Ásgeir verður að víkja, þetta er alltof langt gengið!”

„Svo er það reyndar allt önnur umræða, en mér finnst Sigmar líka einstaklega leiðinlegur spyrill, finnst hann mjög oft tala niður til okkar sem erum í salnum (sussar á fólk í tíma og ótíma, segir mjög oft "krakkar" við það sem ég tel vera fullorðið fólk) og er ekki eins lifandi spyrill og Logi var.”

Sjálfur verð ég að vera sammála síðasta penna; Sigmar er jú alveg einstaklega leiðinlegur.

Ekki mun ég eyða tíma í að rekja allar þær villur sem leynst hafa í spurningum Páls Ásgeirs í vetur, til þess eru þær of margar, né heldur nenni ég fara út í það hversu lélegar og einhæfar spurningarnar voru framan af.

Til að gæta jafnréttis og forðast einelti vil ég þó benda á að allir dómarar gera mistök, þó Páll hafi e.t.v. náð nýjum hæðum (eða botni?) í þeim efnum. Því til staðfestingar langar mig að benda á nokkrar villur á starfsferli Davíðs Þórs, til viðbótar við mistökin sem kostuðu MH sigur í fyrra:

Í útvarpinu var spurt til hvaða texta væri vitnað með þessum orðum: „Ber er hver að baki nema sér bróður eigi...” Rétt svar í hans bókum var Egilssaga og er það vissulega rétt, en þar vantaði einnig Njálu, því sannarlega sagði Kári Sölmundarson við húsfreyju Bjarnar hvíta Kaðalssonar úr Mörk: „Ber er hver að baki nema sér bróður eigi og gafst Björn mér vel. Hann vann á þremur mönnum en er hann þó sár sjálfur. Og var hann mér hinn hallkvæmasti í öllu því sem hann mátti.”

Einnig ruglaði hann vísvitandi saman plágu þeirri, sem Hvala-Einar Herjúlfsson kom með hingað til lands árið 1402 og plágunni, sem riðið hafði meginlandi Evrópu nánast að fullu um 50 árum fyrr. Í því tilviki fiskaði hann því í raun eftir röngu svari. 

Þá sagði Davíð eitt kvöldið að lagið A Whiter Shade of Pale (þ.e. laglínan) væri í raun eftir Johann Sebastian Bach (en ekki Procul Harum), en það er hreint bull, sem hefur loðað við lagið frá útgáfu þess.


Kynnum mínum af hinum hugljúfa söngfugli og skoðanaglaða snillingi, Bobby Fischer, mun ég aldrei gleyma. Hvíl í friði, þú mikli andans meistari!

Nú er hreinlega tilefni fyrir mig, sem netskrifara, að snúa mér heilan hring í gröfinni við þetta merka en miður skemmtilega tilefni. Fischer er vitanlega eitt merkilegasta Gáfumenni, sem uppi hefur verið fyrr og síðar. Sjálfur varð ég þess heiður að njótandi að kynnast honum á síðasta ári, og það í gleðskap ungmenna í úthverfi Reykjavíkur, en þangað hafði góður félagi minn, ungur skáksnillingur og Gáfumenni með sterkar neðanjarðar-jaðarskoðanir á mönnum og málefnum, boðið honum í afmæli sitt.

Í bókinni, sem þessi síða er tileinkuð, Biblíu gáfaða fólksins, tileinka ég heilan kafla Fischernum og kynnum mínum af honum þessa merkilegustu kvöldstund lífs míns, þegar kalda stríðið sat sem opin bók við eldhúsborðið, sötraði koníak, stútaði heilli melónu, samlokum og einni flatböku til! 

Þar skein hin ljúfa og mannlega hlið Bobby í gegnum þráhyggjufullar meiningar hans um samfélag okkar og ekki síst, föðurland hans, sem lék hann svo grátt; Bobby tók nefnilega upp á því að syngja fyrir mig uppáhaldslögin sín, en í mestum metum hjá honum voru gömul og hjartnæm ástarlög og mörg þeirra eftir Gyðinga, sem voru þó ekki í allra mestu uppáhaldi á öðrum sviðum. Textana kunni þessi bráðskarpi maður vitanlega tugum saman algjörlega utan að og var því reglulega gaman að hlusta á hann.

Megi minning þessa mikla meistara, Mr. Fischer, lifa um alla eilífð!

 


Rótgróið hatur hans í garð Bandaríkjamanna er fyllilega skiljanlegt!

Ég held að við getum öll dæmt Bandaríkjamenn nú þegar fyrir framferði þeirra gagnvart Bobby (sem og auðvitað mörgum öðrum). Um áhrif hins opinbera í Bandaríkjunum, allt frá fyrstu tíð, hef ég þegar skrifað og varpað fram stórum spurningum í bók minni. Rótgróið og þrálátt hatur hans Bobby í garð Bandaríkjanna og þeirra heigulshuguðu bandamanna, ber ekki að tengja við kyn furðufugla og geðveilu, líkt og ávallt er gert, heldur er það á allan hátt fyllilega skiljanlegt. Er orka slíks ofurhuga beinist í átt að stærsta óvini, má ljóst vera að ímugusturinn verður sterkur og það sem á vegi hans verður má verjast vel.
mbl.is „Sagan mun dæma Bandaríkjamenn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biblía gáfaða fólksins, árituð á 599 krónur heim að dyrum

Stutt tilkynning: Þar sem ég var að fá þá tilkynningu að hin mjög svo vandaða bók mín, Biblía gáfaða fólksins, mun innan fárra daga kosta litlar 699 krónur á útsölu Penna- og Eymundssonbúða, þá er ég reiðubúinn að senda hana heim að dyrum þínum fyrir 599 krónur áritaða ásamt veggspjaldi og bókamerki.

Þeir sem hafna þessu tilboði og geta ekki borið fyrir sig kommínskan fjárskort sökum listrænu eða fræða, eiga á engan hátt skilið eiga slíka og þvílíka bók! 

Pantanir berist á gilsneggerz@gmail.com

 


Sauðsvartur almúginn skilur mig ekki

Þetta hafa lesendur mínir að segja við nýlega færslu. Nú kæri ég mig einfaldlega ekki um að fæða öll þessi andlega hungruðu svín með fleiri dýrmætum perlum og læt því þessu flaggi  lokið... a.m.k. um sinn:

 

Þú reynir of mikið.

Bloggrugl (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 15:08

2

...Aðeins og mikil áreynsla og aðeins of særandi fyrr aðeins of marga..

edda katrín (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 15:13

3 Smámynd: Birgir Snævarr Ásþórsson

Ég veit ekki hvort þú gerir þér grein fyrir að þú ert að brjóta lög með þessum skrifum.

Birgir Snævarr Ásþórsson, 23.12.2007 kl. 15:36

4

Hefur þú skoðað hvað augabúnirnar þínar eru skuggalega nálægt efri vörinni?

Sennilega út af því hvað heilinn þinn er þungur og þá sígur allt niður.

Reyndu nú að þroskast drengur. 

Jón (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 19:35

5

Nefkenning, þýsku nasistanna er löngu afsönnuð, og hrakin.  Færsla þín hefði fengið hljómgrunn í kringum 1930.  Slæmt fyrir þig, að vera ekki uppi  á þeim tíma.  Ég efast samt stórlega um að þú hefðir komist í SS.  Kannski hefðirðu getað orðið skrifstofumaður í utanríkisráðuneyti nasista, sem stimplari, á yfirfarin skjöl. Miðað við það sem þú skrifar, þá væri það embætti algjört hámark ferilsins.

Jónas Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.12.2007 kl. 00:09

6 Smámynd: Vendetta

Ég vil bara endurtaka það sem ég skrifaði áður: Er það ekki öfugmæli þegar illa gefinn gaur eins og þú ert að skrifa biblíu fyrir gáfaða fólkið? Það sýnir sig líka að þessi "biblía" þín er lítið annað en nazistaþvæla frá upphafi til enda.

Ég mundi ekki lesa þessa bók þótt ég fengi hana gefins. Hún ætti að vera prentuð á klósettpappír svo að allir sem færu á almenningsklósett gætu sýnt henni þá virðingu sem hún á skilið.

Vendetta, 24.12.2007 kl. 01:06


Hann er engin heilög kýr kallinn!

Í tilefni þessarar umfjöllunar um Jón Gnarr, sem virðist vera einhvers konar heilög kýr í hugum fólks, og í tilefni af allri þessari maníu í kringum innihaldslausa trúarhátíð, langar mig að birta hér stuttan kafla um trúna úr bókinni minni, Biblíu gáfaða fólksins:

 

Trúin: Gáfumennið er hafið yfir hefðbundin trúarbrögð, það veit betur. Það trúir ekki á aðra, heldur sjálft sig; ekki á morgundaginn, heldur daginn í dag; ekki á vitleysu, heldur vísindin! Gáfumennið hatast þó við Tom Cruise eins og flestar tegundir mannkyns gera; kvenkyn mannskepnunnar virðist þó gjarna vera undantekning þar á, enda sárafá Gáfumenni á þeim bænum.

Það kann þó einhver að spyrja sig hvernig útskýra má meint trúarofstæki Gáfumenna á borð við hina fyrr nefndu Halldór Laxness og Þórberg Þórðarson. Klausturdvöl Halldórs var auðvitað lítið annað en leit að næði, þaki og fæði á meðan hann sinnti skrifum, ekki ólíkt því, sem tíðkaðist á meðal Gáfumenna fyrr á öldum. Mál Þórbergs eru hins vegar öllu flóknari og má að vissu leyti bera trúaræði hans saman við trú hins þjóðkunna spéfugls, Jóns Gnarr. Þórbergur styrktist aðeins í trúnni eftir því sem almenningur var vissari um, að þarna væri líklegast eitthvað sprell á ferð; um leið og þeim Jóni og Þórbergi hefur verið skipað í ákveðið hólf, skipta þeir. Þórbergi til málsbótar má að lokum benda á þá staðreynd, að hann gleypti aldrei við fyrir fram mótuðum hugmyndum um allífið og eilífðina, heldur skóp hann sína alheimsmynd sjálfur. Aukinheldur eru þessir tveir meistarar (HKL og ÞÞ) fallnir frá ásamt sínum samferðarmönnum og með nýrri kynslóð Gáfumenna má segja að villutrúin sé með öllu horfin úr upplýstum heimi gáfumennskunnar.    


mbl.is „Jón Gnarr" fær fjölmörg aðdáendabréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bölvaðir apar - þá skortir allan vísindalegan skilning og reglusemi

Hvað sagði ég ekki hér um daginn og studdi með vísindalegum rökum? Hinir þeldökku eru einfaldlega ekki jafn greindir og við bleiknefjarnir. Höfuðið er allt styttra - það er styttra bil á milli efri varar (sem nær reyndar ansi langt upp) og augabrúna og þ.a.l. er minna rúm fyrir heilann, sem öllum gáfum veldur.

Mér leiðist annars að kasta hér perlum fyrir svín á þessu flaggi. Og ég vissi reyndar að það myndi gerast fyrr en síðar, að ég fengi ælu mína upp í kok og myndi jafnvel finna hana vella út um munnvikin og yfir lyklaborðið og þannig sjá hversu mikið ég gef án þess að fá nokkurn skapaðan hlut til baka. 

Þá vil ég fremur benda lesendum mínum - og einkum þeim, sem hafa áhuga á því að lesa lengra - á að kaupa bókina mína,  Biblíu gáfaða fólksins, í næstu verslun, og sjá þar allan sannleikann, og m.a. ritgerðina góðu um lága greindarvísitölu hinna hörundsdökku.


mbl.is Rugluðust á heila og hné
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágætis mynd af mér

 

Ég tók það nú reyndar fram að þessi nafnastuldur hans Egils hefði valdið mér nokkrum óþægindum frá því hann tók upp á gælunafni sínu - hvort tveggja sálrænum og praktískum í mínu daglega lífi, enda hefur fólk hæðst að mér og afgreiðslufólk rekur upp stór augu, sem og starfsfólk í bönkum. Alla tíð hef ég stytt miðnefni mitt 'Njörður' niður í 'N.'

Annars get ég bara unað sáttur við þessa mynd - þarna sést bersýnilega að ég er öllu stærri og myndarlegri en þessi litli, appelsínuguli, kassalega strákgemlingur, þó kurteis sé. Ég hvatti hann til að gefa félögum sínum eintak af bókinni, og var hann sammála mér í því að þeim veitti eigi af bóklestri.

Þá vil ég minna fólk á að Biblía gáfaða fólksins fæst í öllum bókaverslunum, Hagkaupsbúðum og bensínstöðvum fyrir rétt rúmar 1000 krónur.   Þeir sem vilja gera hagstæð magninnkaup á bókinni - og fá þannig hverja jólagjöf á gjafaverði - skulu senda mér póst á gilsneggerz@gmail.com

 

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
PS: Mér finnst nú illa farið með nafnbótin rithöfundur, ef Egill þessi fær að flíka henni, og það 'þekktur rithöfundur'. Þá eru nú heil tvö ár liðin (ekki eitt), frá því hann gaf út bók sína, uppfulla af nektarmyndum af sjálfum sér!

 

 


mbl.is Gils og Gillz tókust í hendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband